Absence of Roses Moiré – Cole & Son
42.990 kr. rúlluverð
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
Fatahönnuðurinn og pönkdrottningin Vivienne Westwood hannaði Absence of Roses rósamynstrið fyrir vor- og sumartískuna 1994. Innblásturinn kom upphaflega frá 18. aldar hirðmálaranum og grasafræðingnum Pierre-Joseph Redouté sem frægur var fyrir málverk sín fyrir frönsku drottninguna Marie Antoinette. Vivienne Westwood notaði útlínur rósamynstra hans sem grunn að Absence of Roses („rósir án rósanna“). Bakgrunnurinn er með sk. moiré áferð, eins konar skýjuðu bylgjumynstri sem minnir á tegund af silki og er einnig þekkt í klassísku veggfóðri frá Cole & Son. Áferðin gefur veggfóðrinu dýpt og hreyfingu sem beintengist einmitt kjólahönnun Westwood. Samtenging þessara tveggja mynstra er skapar rómantískt veggfóður sem umlykur hvaða rými sem er með mýkt silkis.
Í boði sem biðpöntun





























