Vivienne Love Andreas – Cole & Son

79.990 kr. rúlluverð

Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.

Mynstrið Vivienne Love Andreas var handmálað af Vivienne Westwood sjálfri og  birtist fyrst í haust- og vetrarlínunni La Nouvelle Eve í París 2022-23. Mynstrið er innblásið af listaverkabók sem Vivienne var að lesa á þeim tíma með ítölskum naívista-verkum frá 18. öld. Sjálf tískulínan var glæsileg hylling til leikhúss- og listaheimsins og það endurspeglast víða í mynstrunum.

Listamenn Cole & Son unnu ötullega að því að vera handverki Vivienne eins trúir og mögulegt var til að ná upprunalega útlitinu með endurtekningunni sem minnir á flísalögn. Vivienne Love Andreas dregur nafn sitt af hálf-földum textanum sem minnir á veggjakrot. Veggfóðrið býður upp á tækifæri til að skreyta veggina með frumlegu listaverki tískufrumkvöðuls sem segir sögu langrar ástarsögu og skapandi samstarfs.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 70 cmRúllulengd: 8 mMynsturhæð: 125 cm
Áætla rúllufjölda
m
m
cm
m
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping