Vivienne Love Andreas – Cole & Son
79.990 kr. rúlluverð
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
Mynstrið Vivienne Love Andreas var handmálað af Vivienne Westwood sjálfri og birtist fyrst í haust- og vetrarlínunni La Nouvelle Eve í París 2022-23. Mynstrið er innblásið af listaverkabók sem Vivienne var að lesa á þeim tíma með ítölskum naívista-verkum frá 18. öld. Sjálf tískulínan var glæsileg hylling til leikhúss- og listaheimsins og það endurspeglast víða í mynstrunum.
Listamenn Cole & Son unnu ötullega að því að vera handverki Vivienne eins trúir og mögulegt var til að ná upprunalega útlitinu með endurtekningunni sem minnir á flísalögn. Vivienne Love Andreas dregur nafn sitt af hálf-földum textanum sem minnir á veggjakrot. Veggfóðrið býður upp á tækifæri til að skreyta veggina með frumlegu listaverki tískufrumkvöðuls sem segir sögu langrar ástarsögu og skapandi samstarfs.
Í boði sem biðpöntun





























