Reikningsviðskipti

Skilmálar fyrir reikningsviðskiptum við Sérefni ehf.

Eingöngu ábyrgðaraðili umsóknarfyrirtækis getur sótt um reikningsviðskipti. Það er framkvæmdarstjóri, fjármálastjóri eða prókúruhafi.

Samþykki fyrir öflun og notkun lánshæfismats hjá Creditinfo

Umsóknaraðili veiti Sérefnum fullt umboð til að kalla eftir upplýsingum um lánshæfismat til Creditinfo.

Nánari upplýsingar um lánshæfismat Creditinfo má finna á www.creditinfo.is

Breytingar

Allar breytingar varðandi reikningsviðskipti og úttektaraðila skulu berast til Sérefna á netfangið [email protected]

Mat á umsókn

Sérefni meta allar umsóknir og taka ákvarðanir varðandi reikningsviðskipti út frá uppgefnum upplýsingum. Öllum umsóknum sem eru samþykktar er svarað með staðfestingarpósti á netfang umsækjanda.

Greiðslur

Stofnuð er safnkrafa hjá öllum viðskiptavinum okkar og samþykkir umsækjandi að allar greiðslur fari í gegnum útsendar kröfur. Athugið að þessar kröfur bera ekki seðilgjald.

Öll ógreidd vara er eign Sérefna þar til fullnaðargreiðsla hefur átt sér stað.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping