True Punk Stripe – Cole & Son
41.990 kr. rúlluverð
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
Pönkuð útfærsla á röndum hefur verið endurtekið þema í fatalínum Vivienne Westwood frá fyrstu tíð. Málaða röndin kom fram í fatalínum á pönktímabilinu í byrjun níunda áratugnum, oft í bakgrunni eða yfirprenti. True-Punk Stripe röndin hefur þróast í gegnum tímann og birtist nýlega í haust- og vetrarlínu Vivienne Westwood 2025-26, t.d. í skyrtum í yfirstærð.
Túlkun Cole & Son á röndinni fyrir veggfóður sýnir upprunaleg handmáluð gæði randarinnar sem og áferð textílefnisins sem hún var máluð á.
Í boði sem biðpöntun





























