Panel Height:
Panel Width:
Match: Half Drop
65.990 kr.
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
The Rainforest Squiggle er abstrakt og frjálsleg túlkun á hinu þekkta Squiggle mynstri – sem fyrst sást á tískupöllunum í Pirate-línu Vivienne Westwood og Malcolm McLaren árið 1983. Veggfóðrið Rainforest Squiggle er frá 2014-15 og var samvinna Vivenne og Cole & Son um baráttuna til bjargar regnskógunum í Perú.
Listamenn Cole & Son tóku grafíska framsetningu mynstursins og blönduðu handverki í hönnunina með því að mála hana í einni samfelldri, tvílita pensilstroku. Útkoman er einföld sem samt djörf og nútímaleg heilmynd sem geislar af orku. Bugðótt línan gerir auganu kleift að ferðast um formið í endalausri lykkju þar sem ferðalag handar listamannsins er aldrei rofin.
Heilmyndin er 4m á hæð og 1,4 m á breidd. Sjá mynd hvernig henni er skipt upp í lengjur.
Í boði sem biðpöntun
Panel Height:
Panel Width:
Match: Half Drop