Panel Height:
Panel Width:
Match: Half Drop
81.990 kr.
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
Fatahönnuðurinn og pönkdrottningin Vivienne Westwood hannaði köflótta MacAndreas fatamynstrið upphaflega í samstarfi við vefarana Lochcarron í Skotlandi til heiðurs eiginmanni sínum og hönnunarfélaga, Andreas Kronthaler. Áhugi Vivenne á enskum og skoskum hefðum varð henni mikill innblástur og viðfangsefni fyrir skopstælingu. Mynstrinu var reyndar bætt á opinbera skrá á skotaefnum (e. tartan) árið 1994 – sem er mikil viðurkenning.
Draped Tartan er útfærsla á MacAndreas Tartan veggfóðrinu sem sýnir hvernig upprunalega textílefnið leggst og fellur í mismunandi áttir. Útkoman er innblásin af frægum taffetakjól sem Vivienne Westwood hannaði fyrir haust/vorlínuna Anglomania 1993-94 og Kate Moss klæddist svo áberandi glæsilega á sýningunni. Mynstrið er dásamlega handmálað og sett fram í einni af litasamsetningum MacAndreas Tartan veggfóðrinu; því bleika og blágræna Cyan & Magenta – pönkútfærslunni sem einungis djörfustu viðskiptavinirnir þora að velja!
Heilmyndin er 4m á hæð og 1,4 m á breidd. Sjá mynd hvernig henni er skipt upp í lengjur.
Í boði sem biðpöntun
Panel Height:
Panel Width:
Match: Half Drop