Línolía og trétjara

Starfsmenn Sérefna eru stoltir því að geta boðið viðskiptavinum sínum upp á málningu sem byggir á náttúrulegum efnum, gömlum vinnsluhefðum og handverki. Þar má nefna ekta línolíumálningu, trétjöru, viðarolíur, shellack, kalkmálningu og marmaraspartl. Þessi efni eiga það sammerkt að vera náttúruleg (eru ekki framleidd á kemískan hátt) og eiga ekki uppruna sinn í olíuiðnaðinum – eins og öll nútímamálningarefni gera í raun. Til fróðleiks má nefna að fyrsta plastefnið (nylon) var framleitt upp úr 1930 og í kjölfarið hófst fjölbreytt plastframleiðsla sem hafði gríðarleg áhrif á framleiðslu efna í málningariðnaðinum. Því má með sanni segja að við höfum einungis umgengist plastefnin í einn mannsaldur. Gömlu efnin eiga það hins vegar sameiginlegt að hafa verið notuð um aldir til að skreyta hýbýli og verja fyrir ágangi tíma og veðurs.
Sérefni flytja inn vörur sænsku fyrirtækjanna Allbäck og Auson sem eru leiðandi í framleiðslu slíkra hefðbundinna náttúruefna. Allbäck línolíuvörurnar eru þannig
bæði umhverfis- og mannvænar: Þær eru lífrænar, lausar við hættuleg kemísk efni, einstaklega endingargóðar og þekja mjög vel. Línolíumálningin er stundum kölluð „kraftaverkamálningin“ þar sem hún er stíf en samt sem áður teygjanleg og springur ekki. Hún fer djúpt í viðinn, nærir hann og hleypir raka í gegn. Nýverið var allt tréverk (s.s. gluggar, hurðir) Versalahallanna tekið í gegn og málað með Allbäck línolíumálningu.
Auson trétjaran er einnig gerð úr náttúrulegum hráefnum, unnin úr rótum og fræjum trjáa. Trétjara hefur verið notuð öldum saman á Norðurlöndunum til að verja timburveggi og tréverk fyrir sprungu-myndun og upptöku raka sem á endanum eyðileggur viðinn. Það má rekja til trétjörunnar hve vel timburbyggingar frá miðöldum eru varðveittar í dag.
Trétjara – vörubæklingur
Litla línolíuhandbókin – leiðbeiningar fyrir notendur
Notkun á línolíuvaxi og línolíumálningu – myndbönd
Á heimasíðu Allbäck má finna myndbönd um eftirfarandi:
Tækniblöð
Auson
Noxudol sínkúði
Allbäck
Krít
Línolíu ofnasverta
Línolíu sínkhvíta
Shellack flögur
Shellack vökvi
Þurrkefni













Arch Deco, Blue - Rebel Walls
Aquatic Life, Coral - Rebel Walls
Hexagon Leaves - Rebel Walls
Scandinavian Bellewood, Fall - Rebel Walls
Rabbit Hole - Rebel Walls
Shinrin, Yoku - Rebel Walls
Harmony, Gray - Rebel Walls
Rabbit Hole, Moss - Rebel Walls
Scandinavian Bellewood, Frost - Rebel Walls
Alpaca Rebel, Rainbow - Rebel Walls
Cygne, Rose - Rebel Walls
Housewarming - Rebel Walls
Lingering Wall - Rebel Walls
Alpaca Rebel, Sky - Rebel Walls
Scandinavian Bellewood, Grey - Rebel Walls
Victoria's Garden - Rebel Walls
Opulence, Pink Marble - Rebel Walls
Chinoiserie Chic, Saffron - Rebel Walls
Animal Avenue - Rebel Walls
Alluring Panthers - Rebel Walls
Pride Palms, Plum - Rebel Walls
Star Maps - Rebel Walls
Chinoiserie Chic, Pearl - Rebel Walls
Chinoiserie Chic, Fuchsia - Rebel Walls
Dinosaur Mountain, Nightfall - Rebel Walls
Opulence, Jade - Rebel Walls
Notting Hill - Rebel Walls
Opulence, Marble - Rebel Walls
We Are Robots - Rebel Walls
Lush Foliage, Sage Tint - Rebel Walls
Alice's Garden, Dusk - Rebel Walls
Cabinet Of Curios, Raw - Rebel Walls
Lush Foliage - Rebel Walls
Welcome To The Jungle, Authentic - Rebel Walls
Asian Pines - Rebel Walls
Mischievous Tigers, Moonlight - Rebel Walls
Aquarium, Pastel - Rebel Walls
Chinoiserie Chic, Cobalt - Rebel Walls
Chinoiserie Chic - Rebel Walls
Mischievous Tigers - Rebel Walls