Hand-Painted Leopard – Cole & Son
63.990 kr. rúlluverð
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
Vivienne Westwood tískuhúsið hefur notað loðskinnaprent á textílefni í meira en fjóra áratugi í djörfum og byltingarkenndum útfærslum. Hlébarðamynstur í yfirstærð kom fram í vor- og sumarlínunni 1989 og í skærrauðum tónum í haust- og vetrarlínunni 1992-93. Vivienne naut þess að nota mynstrið á annan hátt en þau birtast í raun í náttúrunni.
Hlébarðamynstrið Handpainted Leopard var endurhannað og handmálað hjá Cole & Son með lífrænni tilfinningu fyrir hreyfingu og vísan í stílfært textílmynstur Vivienne. Veggfóðrið er prentað með silkiprenttækni til að ná betur fram uppreisnaranda sem er trúr pönkaðri fyrirmyndinni. Litirnir eru óvæntir og gera þar með línuna milli abstrakt listar og dýrafelds enn óskýrari.
Í boði sem biðpöntun





























