Soft Thistle – Cole & Son
63.990 kr. rúlluverð
Cole & Son x Vivienne Westwood er nýtt samstarfverkefni í veggfóðurshönnun þar sem goðsagnakennd bresk hönnun, rík arfleifð og hefðbundið handverk mætast í nútímaumhverfi. Frægar sögulegar tilvísanir blandast saman við framsækna sköpunarsögu Vivienne Westwood og mynda einstaka veggfóðurslínu sem sameinar heim tísku, innanhússhönnunar og lífsstíls.
Vivienne Westwood notaði Soft Thistle mynstrið fyrst sem stílfærða vísun í tengsl tískuhússins við Skotland – þar sem mjólkurþistillinn vex víða. Mynstrið birtist í vor- og sumarlínu tískuhússinns árið 2023 og er eftir eiginmann Vivienne, Andreas Kronthaler.
Ofurstór hlutföll mynstursins gefa veggfóðrinu sterka grafíska eiginleika en hönnuðir Cole & Son ákváðu að mýkja upprunalega mynstrið aðeins fyrir veggi með handmálaðri krossskyggingaraðferð sem líkir eftir veðrunarmeðferðum á textíl og tískuhúsið notar einmitt iðulega í hönnun sinni.
Í boði sem biðpöntun





























