Hortus Champagne Beige – Arte

22.800 kr. lengdarmetraverð

Náttúruleg efni á borð við basalt, steinefni og kork mynda grunninn að Kaolin-línunni. Sérstakt útlit og áferð fara einstaklega vel saman við kraftmikil, grafísk mynstrin. Hönnunin nær fullkomnu jafnvægi á milli hreinleika og tjáningar. Hún býr jafnframt yfir listfengi og þeim karakter sem þekkist bara í hefðbundnu handverki. Veðruð freska setur svo punktinn yfir i-ið í þessari fáguðu línu, sem einkennist fyrst og fremst af ríkulegri áferð.

Hortus er afar skrautlegt plöntumynstur þar sem ímyndunarafl og fágun sameinast. Myndskreytingin er gróskumikil og fjörleg, full af skemmtilegum smáatriðum; takið til dæmis eftir útfærslu laufblaðanna og æðunum í þeim. Mynstrið þekur nánast allt yfirborðið þannig að lítið sem ekkert tómarúm stendur eftir.  Útkoman er heildarsvipur sem er ótrúlega mjúkur og samfelldur, næstum eins og um einsleitt yfirborð væri að ræða. Mynstrið er prentað með möttu bleki á ekta kork, sem gefur því fallega veðrað útlit.

Hortus er veggfóður úr náttúruefni með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Mynstrið skáhliðrast 91,44/45,72 cm. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr náttúrulegum efnum og textíl á non-woven bakhlið

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 75 cmMynsturhæð: 45,72 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping