Passeggio Bright Sunset – Arte

189.900 kr.

Náttúruleg efni á borð við basalt, steinefni og kork mynda grunninn að Kaolin-línunni. Sérstakt útlit og áferð fara einstaklega vel saman við kraftmikil, grafísk mynstrin. Hönnunin nær fullkomnu jafnvægi á milli hreinleika og tjáningar. Hún býr jafnframt yfir listfengi og þeim karakter sem þekkist bara í hefðbundnu handverki. Veðruð freska setur svo punktinn yfir i-ið í þessari fáguðu línu, sem einkennist fyrst og fremst af ríkulegri áferð.

Passeggio minnir á veðraða, klassíska fresku eða veggmálverk þar sem glæsilegar trönur eru aðalmótífið. Myndin er prentuð á yfirborð sem líkist ekta pergamenti og í samspili við hönnunina býr það til áhrif náttúrulegrar öldrunar. Heilmyndin er 200 cm x 300 cm (6 m²). Á stærri fleti má endurtaka mynstrið og setja aðra heilmynd við hlið þeirrar fyrri.

Grezzo er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 30371 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , , , ,

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping