Calcaire Stucco Greige – Arte
39.900 kr. rúlluverð
Náttúruleg efni á borð við basalt, steinefni og kork mynda grunninn að Kaolin-línunni. Sérstakt útlit og áferð fara einstaklega vel saman við kraftmikil, grafísk mynstrin. Hönnunin nær fullkomnu jafnvægi á milli hreinleika og tjáningar. Hún býr jafnframt yfir listfengi og þeim karakter sem þekkist bara í hefðbundnu handverki. Veðruð freska setur svo punktinn yfir i-ið í þessari fáguðu línu, sem einkennist fyrst og fremst af ríkulegri áferð.
Calcaire Stucco veggfóðrið er unnið af mikilli handverksnákvæmni, með áferð sem minnir á stucco steinefnaspartl eða sandaða kalkmálningu. Mild litbrigðin skapa mjúkt og náttúrulegt yfirborð sem býr yfir mikilli dýpt og karakter. Auðvelt er að setja veggfóðrið upp og samskeytin verða ósýnileg, sem tryggir gallalausa og samfellda heild, hvort sem um er að ræða veggi eða loft.
Calcaire Stucco er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Í boði sem biðpöntun