Grezzo Mink – Arte
12.900 kr. lengdarmetraverð
Náttúruleg efni á borð við basalt, steinefni og kork mynda grunninn að Kaolin-línunni. Sérstakt útlit og áferð fara einstaklega vel saman við kraftmikil, grafísk mynstrin. Hönnunin nær fullkomnu jafnvægi á milli hreinleika og tjáningar. Hún býr jafnframt yfir listfengi og þeim karakter sem þekkist bara í hefðbundnu handverki. Veðruð freska setur svo punktinn yfir i-ið í þessari fáguðu línu, sem einkennist fyrst og fremst af ríkulegri áferð.
Grezzo er fágað veggfóður úr alvöru basaltflögum, fengnar úr eldfjallabergi. Léttglitrandi bergið fangar ljósið á fallegan hátt og fær vegginn til að ljóma mjúklega. Litirnir sækja innblástur í náttúrulegan stein, sem undirstrikar hreinan og lífrænan karakter efnisins.
Grezzo er veggfóður þakið náttúrusteini með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Mynstrið skáhliðrast 128/64 cm. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Í boði sem biðpöntun