Solco Brick – Arte
47.700 kr. rúlluverð
Náttúruleg efni á borð við basalt, steinefni og kork mynda grunninn að Kaolin-línunni. Sérstakt útlit og áferð fara einstaklega vel saman við kraftmikil, grafísk mynstrin. Hönnunin nær fullkomnu jafnvægi á milli hreinleika og tjáningar. Hún býr jafnframt yfir listfengi og þeim karakter sem þekkist bara í hefðbundnu handverki. Veðruð freska setur svo punktinn yfir i-ið í þessari fáguðu línu, sem einkennist fyrst og fremst af ríkulegri áferð.
Solco er ítalskt orð sem þýðir gróp eða skora – nafn sem hæfir þessu veggfóðri fullkomlega. Geómetrískt mynstrið er myndað af mjóum og breiðum rásum sem virðast skornar út í höndunum. Undirlagið hefur útlit stucco áferðar, eða svokallaðs steinefnaspartls. Mild litbrigðin undirstrika síðan handverkslegt yfirbragðið.
Solco er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Mynstrið skáhliðrast 128/64 cm. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Í boði sem biðpöntun