Fragment Sahara – Arte
47.700 kr. rúlluverð
Náttúruleg efni á borð við basalt, steinefni og kork mynda grunninn að Kaolin-línunni. Sérstakt útlit og áferð fara einstaklega vel saman við kraftmikil, grafísk mynstrin. Hönnunin nær fullkomnu jafnvægi á milli hreinleika og tjáningar. Hún býr jafnframt yfir listfengi og þeim karakter sem þekkist bara í hefðbundnu handverki. Veðruð freska setur svo punktinn yfir i-ið í þessari fáguðu línu, sem einkennist fyrst og fremst af ríkulegri áferð.
Bakgrunnurinn í Fragment veggfóðrinu hefur raunsætt útlit og áferð steinefnaspartls (stucco). Kraftmikið, grafískt mynstur er síðan útfært í ítrustu smáatriðum; engir tveir þættir í hönnuninni eru eins. Sterkar línurnar skapa hreyfingu en mjúkir tónar í sama lit sem og handverksáferð tryggja að heildarsvipurinn helst náttúrulegur og í góðu jafnvægi.
Fragment er veggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Mynstrið skáhliðrast 64/32 cm. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Í boði sem biðpöntun