Charmille Sunglow – Arte
56.500 kr. rúlluverð
Ombré-línan kannar fegurð fínlegra litbrigða og áhrif blæbrigðaríkra tóna. Þegar einn litatónn rennur smám saman yfir í annan verða til ríkuleg lög af dýpt og stemningu. Þessi einkennandi áhrif litaskipta (fr. ombré) mynda rauðan þráð í gengum alla hönnunarlínuna og birtast í röð verka sem hvert um sig túlkar þetta heillandi mynstur á einstakan hátt.
Charmille er franskt hugtak sem lýsir tvöfaldri röð trjáa sem klippt hafa verið og ræktuð þannig að þau mynda saman náttúrulegt laufþak. Það er viðeigandi heiti á þessu gróskumikla laufmynstri sem er prentað með mjúkum litskiptum með áferð sem minnir á grófofinn hör.
Charmille er vínilveggfóður með pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með setja límið á bakhlið veggfóðurs. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun