Fade Amber – Arte
54.500 kr. rúlluverð
Ombré-línan kannar fegurð litbrigða og áhrif blæbrigðaríkra tóna. Þegar einn litatónn rennur smám saman yfir í annan verða til ríkuleg lög af dýpt og stemningu. Þessi einkennandi áhrif litaskipta (fr. ombré) mynda rauðan þráð í gegnum alla hönnunarlínuna og birtast í röð af veggfóðri sem hvert um sig túlkar þetta heillandi mynstur á einstakan hátt.
Fade veggfóðrið fangar áferð og einkenni grófofins raffíavefs, með áberandi upphleyptri áferð og vísvitandi óreglu í vefnum sem hefur einstaklega raunverulegt yfirbragð. Djörf áhrifamálun í tveimur andstæðum litum skapar lifandi samspil ljóss og skugga.
Fade er vínilveggfóður með pappírsbaki. Það er mjög þvottþolið og auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með setja límið á bakhlið veggfóðurs. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun