Arbor Mocha – Arte
80.500 kr.
Ombré-línan kannar fegurð fínlegra litbrigða og áhrif blæbrigðaríkra tóna. Þegar einn litatónn rennur smám saman yfir í annan verða til ríkuleg lög af dýpt og stemningu. Þessi einkennandi áhrif litaskipta (fr. ombré) mynda rauðan þráð í gengum alla hönnunarlínuna og birtast í röð verka sem hvert um sig túlkar þetta heillandi mynstur á einstakan hátt.
Arbor heilmyndin sýnir útlínur trjáa á litríkum bakgrunni með stórkostlegum litbrigðum. Þökk sé örlítið gljáandi „fil-à-fil“ (þráður í þræði) vefnum hefur þetta veggfóður áberandi lúxusyfirbragð. Heilmyndin er 100 x 320 cm (3,2 m2). Á stærri fleti má endurtaka mynstrið og setja aðra heilmynd við hlið þeirrar fyrri.
Arbor er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun