Flux – Arte

135.000 kr.

Ombré-línan kannar fegurð fínlegra litbrigða og áhrif blæbrigðaríkra tóna. Þegar einn litatónn rennur smám saman yfir í annan verða til ríkuleg lög af dýpt og stemningu. Þessi einkennandi áhrif litaskipta (fr. ombré) mynda rauðan þráð í gengum alla hönnunarlínuna og birtast í röð verka sem hvert um sig túlkar þetta heillandi mynstur á einstakan hátt.

Flux heilmyndin einkennist af heillandi litaspili þar sem sterk litbrigði skiptast á. Textíláferðin veitir hönnuninni mikla dýpt og gerir litina sérlega líflega. Heilmyndin er 204 x 320 cm (6,53 m2). Á stærri vegg má endurtaka mynstrið og setja aðra heilmynd við hlið þeirrar fyrri.

Flux er vínilveggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 32383 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , , , ,

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping