Riva Sepia River – Arte
240.000 kr.
Ombré-línan kannar fegurð fínlegra litbrigða og áhrif blæbrigðaríkra tóna. Þegar einn litatónn rennur smám saman yfir í annan verða til ríkuleg lög af dýpt og stemningu. Þessi einkennandi áhrif litaskipta (fr. ombré) mynda rauðan þráð í gengum alla hönnunarlínuna og birtast í röð verka sem hvert um sig túlkar þetta heillandi mynstur á einstakan hátt.
Riva heilmyndin sýnir víðáttumikið landslag við árbakka, faglega útfært með vatnslitaáhrifum sem minna á málverk. Myndefnið er prentað á gróft efni með textíláferð, sem gefur því enn meiri litstyrk. Heilmyndin er 400 x 300 cm (12 m2). Á stærri fleti má endurtaka mynstrið og setja aðra heilmynd við hlið þeirrar fyrri.
Riva er vínilveggfóður með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með.
Í boði sem biðpöntun