Arbor Forest – Arte

80.500 kr.

Ombré-línan kannar fegurð fínlegra litbrigða og áhrif blæbrigðaríkra tóna. Þegar einn litatónn rennur smám saman yfir í annan verða til ríkuleg lög af dýpt og stemningu. Þessi einkennandi áhrif litaskipta (fr. ombré) mynda rauðan þráð í gengum alla hönnunarlínuna og birtast í röð verka sem hvert um sig túlkar þetta heillandi mynstur á einstakan hátt.

Arbor heilmyndin sýnir útlínur trjáa á litríkum bakgrunni með stórkostlegum litbrigðum. Þökk sé örlítið gljáandi „fil-à-fil“ (þráður í þræði) vefnum hefur þetta veggfóður áberandi lúxusyfirbragð. Heilmyndin er 100 x 320 cm (3,2 m2). Á stærri fleti má endurtaka mynstrið og setja aðra heilmynd við hlið þeirrar fyrri.

Arbor er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr textíl á non-woven bakhlið

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping