Strawberry Thief, Indigo/Mineral - Morris & Co
Strawberry Thief, Indigo/Mineral – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Lítill fugl kroppar af óskammfeilni í dýrindis jarðarber í blómamynstrinu Strawberry Thief, sem er eitt alþekktasta og vinsælasta veggfóður Morris. Áferðin og útlitið er með ekta handgerðu blokkprenti. Það er fáanlegt í nokkrum ljúfum og fallegum litasamsetningum.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
37.892 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Terrain Earth - Rebel Walls
Dreamy Tree - Boråstapeter
Pensill - Mako, fyrir pallaolíu 130mm
Tree of Life, Burgundy - Sandberg
Nelson Dandelion - Arte
Rainbow World - Rebel Walls
Pensill - Harris Premier, 38mm
Concrete Art, Night Swallow - Rebel Walls
Nelson Ash Purple - Arte
Dancing Crane - Boråstapeter
Willow Boughs, Minor Privet - Morris & Co