Snakeshead, Stone/Cream – Morris & Co
39.877 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Sagt er að Snakeshead mynstrið hafi verið í sérstöku uppáhaldi hjá Morris og var upphaflega framleitt árið 1876. Veggfóðrið sýnir klasa af keisaraliljum sem mynda einskonar skjaldarmerki. Útgáfan Snakeshead Stone/Cream hefur glæsilegan, gylltan málmgljáa í bakgrunninum.
Snakeshead er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



































































Nuvolette, Black & White - Cole & Son (2 rúllur)
Arance Blood Orange & Ink - Cole & Son
Malachite Midnight & Metallic Silver - Cole & Son
Ex Libris Oat & Charcoal - Cole & Son
Malachite Emerald & Black - Cole & Son
Chiavi Segrete Slate Blue & Grey - Cole & Son
Mediterranea White, Black & Metallic - Cole & Son
Malachite Charcoal & Metallic Silver - Cole & Son