fbpx

Saranda Vermilion Trees - Arte

27.274 kr. lengdarmetraverð

Saranda Vermilion Trees – Arte

Þetta glæsilega textílveggfóður sýnir hæðir og tré undir mildum, skýjuðum himni. Hönnunin er í dæmigerðum asískum stíl, nefnd eftir Saranda skóginum á Indlandi sem liggur við hinn forna Silkiveg. Nafnið er afskaplega viðeigandi þar sem Saranda þýðir bókstaflega „sjö hundruð hæðir“.

Saranda veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

27.274 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 120 cmMynsturhæð: 60 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 11540 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping