fbpx

Banyan Deep Forest - Arte

404.189 kr.

Banyan Deep Forest – Arte

Þessi heilmynd dregur nafn sitt af banyantrénu, sem algengt er að finna meðfram öllum Silkiveginum, hinni fornu verslunarleið þvert yfir alla Asíu. Myndin gerir manni kleift að reika um draumkennt fantasíulandslag, milli hulinna dala og tinda Himalayafjalla. Sú staðreynd að áferðin lítur út eins og ekta silki gerir heilmyndina sérlega lifandi.

Heilmyndin er í staðlaðri stærð: 480 cm x 300 cm = Alls 14.4 m²

Banyan veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

404.189 kr.

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 11531 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping