Bird & Pomegranate, Bayleaf/Cream - Morris & Co
Bird & Pomegranate, Bayleaf/Cream – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Þetta hrífandi veggfóður sýnir fugla svífa, sitja og gogga innan um greinar með laufblöðum og granateplum. Bird & Pomegranate er frá 1926 og er eitt af síðustu blokkprentuðu mynstrunum sem hannað var af Morris og félögum. Það er innblásið af mynstrinu Fruit, sem er miklu eldri veggfóðurshönnun frá þeim.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
41.149 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Hedda, Pastel - Sandberg
Leipzig - Boråstapeter
Lin Grain de Poivre - Arte
Ebba, Green - Sandberg
Shades Sandstone - Boråstapeter
Lin Normandie Pisé - Arte
Atlas Soft Beige - Arte
Le Papier Tissé Eggshell - Arte
Motas Sepia - Arte
Emrik, Burgundy - Sandberg
Esther Misty Blue - Sandberg
Hoopoe Leaves, Crimson, Canary Yellow, Fuchsia on Stone - Cole & Son
Geranium - Cole & Son