Willow, Camomile – Morris & Co
33.224 kr. rúlluverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Willow er eitt allra þekktasta mynstur William Morris. Það sýnir einfaldar og stílhreina víðigreinar teygja sig upp vegginn. Veggfóðrið var hannað árið 1874 og er forveri mun flóknari útgáfu, Willow Boughs, sem var prentuð 13 árum síðar.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Í boði sem biðpöntun



































































Lin Stone - Arte
Emery’s Willow Herball - Morris & Co
Lin Galet - Arte
Lin Dauphin - Arte
Lin Pépite - Arte
Borage Sunflower - Morris & Co
Lin Potatoes - Arte
Alfaro - Cole & Son
Lin Normandie Corde - Arte
Lin Abaca - Arte
Lin Smoke - Arte
Malachite Emerald & Black - Cole & Son
Beata Misty Blue - Sandberg
Terre de Lin Rotin - Arte