Tana Brick - Arte
Tana Brick – Arte
Melaky veggklæðningarnar byggja á fjölbreyttri náttúru Melaky, héraðs á eynni Madagaskar með sínum þurru sléttum, graslendi og þéttum fenjavið. Mórberjatréð og raffíapálminn vaxa þar víða og skapa innblástur fyrir þessa hönnunarlínu. Hún byggir á handverksaðferðum þar sem unnið er með börk mórberjatrésins og trefjar raffíapálmans. Áferð og hlýir, náttúrulegir litir sameinast í fallega lífrænt yfirbragð sem skapar tilfinningu fyrir einfaldleika og dýpt. Algerlega tímalaus hönnunarlína.
Tana er fallegur handgerður vefur unninn úr þykkum raffíalengjum í mismunandi litbrigðum og þykkt, með náttúrulegum hnýtingum. Hönnunin dregur nafn sitt af Antananarivo, höfuðborg Madagaskar – sem heimamenn kalla einnig Tana.
Tana er unnið úr náttúrulegum raffíatrefjum. Takið eftir að lítilsháttar litamismunur og óregluleg áferð eru náttúruefnum og handunninni vöru eðlislæg. Slíkt eykur á fegurð þeirra. Tana er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að gera bakið rakt með vatni áður en veggfóðrið er fer upp en límið er sett á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
19.350 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun


















Golden Arches - Boråstapeter
Ovillo Stone - Arte
Strelitzia Zinc - Arte
Zen, Grey - Sandberg
Jennie Hazel - Sandberg
Wild Tulip & Vine, Multi - Morris & Co
Lykke Terracotta - Sandberg
Acquario Charcoal - Cole & Son
Leopard Walk, Orange on Linen - Cole & Son
Franges Khaki - Arte
Malachite Charcoal & Metallic Silver - Cole & Son
Motas Vintage Pink - Arte
Hav, Misty Blue - Sandberg
Narina, Charcoal - Cole & Son
Wisteria, Coral & Sage on White - Cole & Son
Peaseblossom, Fuchsia on Oat - Cole & Son