Tana Brick – Arte
19.350 kr. lengdarmetraverð
Melaky veggklæðningarnar byggja á fjölbreyttri náttúru Melaky, héraðs á eynni Madagaskar með sínum þurru sléttum, graslendi og þéttum fenjavið. Mórberjatréð og raffíapálminn vaxa þar víða og skapa innblástur fyrir þessa hönnunarlínu. Hún byggir á handverksaðferðum þar sem unnið er með börk mórberjatrésins og trefjar raffíapálmans. Áferð og hlýir, náttúrulegir litir sameinast í fallega lífrænt yfirbragð sem skapar tilfinningu fyrir einfaldleika og dýpt. Algerlega tímalaus hönnunarlína.
Tana er fallegur handgerður vefur unninn úr þykkum raffíalengjum í mismunandi litbrigðum og þykkt, með náttúrulegum hnýtingum. Hönnunin dregur nafn sitt af Antananarivo, höfuðborg Madagaskar – sem heimamenn kalla einnig Tana.
Tana er unnið úr náttúrulegum raffíatrefjum. Takið eftir að lítilsháttar litamismunur og óregluleg áferð eru náttúruefnum og handunninni vöru eðlislæg. Slíkt eykur á fegurð þeirra. Tana er með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að gera bakið rakt með vatni áður en veggfóðrið fer upp en límið er sett á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun















