Farini Ochre – Arte
28.830 kr. lengdarmetraverð
Melaky veggklæðningarnar byggja á fjölbreyttri náttúru Melaky, héraðs á eynni Madagaskar með sínum þurru sléttum, graslendi og þéttum fenjavið. Mórberjatréð og raffíapálminn vaxa þar víða og skapa innblástur fyrir þessa hönnunarlínu. Hún byggir á handverksaðferðum þar sem unnið er með börk mórberjatrésins og trefjar raffíapálmans. Áferð og hlýir, náttúrulegir litir sameinast í fallega lífrænt yfirbragð sem skapar tilfinningu fyrir einfaldleika og dýpt. Algerlega tímalaus hönnunarlína.
Trefjar raffíapálmans eru oft notaðar í innanhússhönnun því þær hafa svo náttúrulegt aðdráttarafl. Í Farini veggklæðningunni er raffían nýtt á nýstárlegan hátt; þegar trefjarnar hafa verið ofnar í breiðar lengjur eru þær skornar í ræmur. Þær eru síðan festar lóðrétt hver við aðra og látnar skarast til að skapa kröftugt línumynstur með mikilli dýpt. Nafnið Farini vísar til Raphia farinifera sem er pálmatré í hitabeltislöndum Afríku.
Farini er unnið úr náttúrulegum, handofnum raffíatrefjum. Takið eftir að lítilsháttar litamismunur og óregluleg áferð eru náttúrlegum efnum og handunninni vöru eðlislæg. Slíkt eykur á fegurð þeirra. Farini með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að gera bakið rakt með vatni áður en veggfóðrið fer upp en límið er sett á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með rökum svampi. Leggja má veggfóðrið bæði lárétt og lóðrétt. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Í boði sem biðpöntun
















