Iki Aqua - Arte
Iki Aqua – Arte
Kanso veggfóðurslínan er innblásin af japönsku hugmyndafræðinni um naumhyggju og einfaldleika í innanhússhönnun. Línan felur sér kjarna hönnunar sem sameinar glæsileg og að því er virðist einföld geómetrísk mynstur. Bólstruð áferð bætir áþreifanlegri þrívídd í rýmið á meðan mjúk flauelsefnin gefa því hlýju og notalegt yfirbragð. Útkoman er hönnun sem geislar af lúxus, án óhófs, þar sem öll mynstur og litir eru vandlega hönnuð með því markmiði að bjóða upp á tímalausan glæsileika.
„Iki“ er japanskt hugtak sem erfitt er að þýða með einu orði, en það felur í sér fágun, glæsileika, einfaldleika og djúpa virðingu fyrir fegurðinni í hversdagslegum hlutum. „Iki“ er áþreifanlegt í þessari hönnun, með sínum skálínum sem skapa fagurlega uppstækkað síldarbeinamynstur. Fjarlægðin milli þessara lína er ójöfn á svipmikinn hátt, sem gefur veggnum fjörugt og kraftmikið yfirbragð. Framstæð áferðin býr til þrívíddaráhrif á meðan efsta lagið í mjúku flaueli bætir lúxusblæ við hönnunina – sem gerir það nánast ómögulegt að láta það vera að snerta flötinn.
Iki veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið
49.500 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Palm Leaves, Ink & Violet - Cole & Son
Lin Stone - Arte
Lo Indigo Blue - Sandberg
Weave Deep Sea - Arte
Cow Parsley, Petrol & Ink - Cole & Son
Temper Galet - Arte
Tasar Marigold - Arte
Dreamy Tree - Boråstapeter
Florence - Boråstapeter
Tela Linen - Arte
Solveig, Clay - Sandberg
Adele, Blue - Sandberg
Bellini, Grey - Cole & Son
Motas Bone - Arte
Motas Mushroom - Arte
Pink & Rose, Cowslip/Fennel - Morris & Co
Matiz Teal - Arte
Nelson Plaster - Arte
Injisuthi, Stone & Sand - Cole & Son
Tela Black Raisin - Arte
Nuvolette, Slate Blue - Cole & Son (2 rúllur)
Cheetah Prowl, Bronze - Cole & Son
Estelle, Sandstone - Sandberg