fbpx

Shibumi Azure - Arte

40.810 kr. lengdarmetraverð

Shibumi Azure – Arte

Kanso veggfóðurslínan er innblásin af japönsku hugmyndafræðinni um naumhyggju og einfaldleika í innanhússhönnun. Línan felur sér kjarna hönnunar sem sameinar glæsileg og að því er virðist einföld geómetrísk mynstur. Bólstruð áferð bætir áþreifanlegri þrívídd í rýmið á meðan mjúk flauelsefnin gefa því hlýju og notalegt yfirbragð. Útkoman er hönnun sem geislar af lúxus, án óhófs, þar sem öll mynstur og litir eru vandlega hönnuð með því markmiði að bjóða upp á tímalausan glæsileika.

Hönnunin að baki þessa veggfóðurs er innblásin af japanska hugtakinu Shibumi sem stendur fyrir samband hins einfalda og flókna. Mynstrið býður upp á heillandi sjónræna upplifun, sem er aldrei leiðinleg. Það sýnir skálagðar lengjur sem breyta skyndilega um stefnu til að skapa hreyfingu og grípandi þrívíddaráhrif. Yfirborðið er úr mjúku flauelsefni sem er ómótstæðilegt fyrir fingurgómana – maður verður bara að snerta!

Shibumi veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið

40.810 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 120 cmMynsturhæð: 120 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 72530 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping