fbpx

Anicca Passion - Arte

40.810 kr. lengdarmetraverð

Anicca Passion – Arte

Kanso veggfóðurslínan er innblásin af japönsku hugmyndafræðinni um naumhyggju og einfaldleika í innanhússhönnun. Línan felur sér kjarna hönnunar sem sameinar glæsileg og að því er virðist einföld geómetrísk mynstur. Bólstruð áferð bætir áþreifanlegri þrívídd í rýmið á meðan mjúk flauelsefnin gefa því hlýju og notalegt yfirbragð. Útkoman er hönnun sem geislar af lúxus, án óhófs, þar sem öll mynstur og litir eru vandlega hönnuð með því markmiði að bjóða upp á tímalausan glæsileika.

Japanska hugtakið Anicca merkir að eitthvað sé breytilegt í eðli sínu. Skálínurnar í þessari hönnun eru ójafnar og mismunandi þykkar þannig að aðlaðandi hreyfing myndast í því. Bólstruð útlitið skapar heillandi þrívíddaráhrif sem vekur líf í rýminu, á meðan mjúk og dáleiðandi flauelsáferðin er næstum ómótstæðilega áþreifanleg.

Anicca veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið

40.810 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 120 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Vörunúmer: 72522 Vöruflokkar: , , Stikkorð: , , ,

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Continue Shopping