Ferns Grow – Omexco

153.258 kr.

Hjarta hönnunarlínunnar Virginia´s Garden er sjálfur efniviðurinn, þ.e. náttúrulegur sísalvefur. Sísal býr til skynjunarsamspil lífrænnar áferðar og fágunar – einstaklega fallegt og hlýlegt. Prentuðu sísalveggfóðrin í línunni vekja upp hugrenningar um draumkennda garða með stílfærðum blómum og flæðandi laufþykkni en þriðji hluti línunnar er fíngerður sísalvefur sem er klipptur upp í lífræn form og síðan felldur saman í fögur mynstur.

Ferns Grow er sýnir gróskulegan og svipmikinn garð í fullum blóma. Ferns Grow er heilmynd, prentuð á náttúrulegum sísalvef. Breidd er 3,64 m og hæð 3 m og kemur myndin skorin niður í fjóra renninga (91 cm hver). Mögulegt er að framlengja mynstrið með annarri heilmynd við hliðina.

Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.

Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir.

Leiðbeiningar fyrir OMEXCO veggfóður úr náttúrutrefjum

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Myndin er 3,64 m á breidd og 3 m á hæð.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping