Daisy – Omexco

16.490 kr. lengdarmetraverð

Hjarta hönnunarlínunnar Virginia´s Garden er sjálfur efniviðurinn, þ.e. náttúrulegur sísalvefur. Sísal býr til skynjunarsamspil lífrænnar áferðar og fágunar – einstaklega fallegt og hlýlegt. Prentuðu sísalveggfóðrin í línunni vekja upp hugrenningar um draumkennda garða með stílfærðum blómum og flæðandi laufþykkni en þriðji hluti línunnar er fíngerður sísalvefur sem er klipptur upp í lífræn form og síðan felldur saman í fögur mynstur.

Daisy er veggfóður úr áprentuðum sísalvef. Mynstrið sýnir afturhvarf til listmálunar þar sem djarfar pensilstrokur láta stór og glæsileg blóm lifna við á veggnum.

Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.

Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarks pöntun er 3 m2.

Leiðbeiningar fyrir OMEXCO veggfóður úr náttúrutrefjum

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 91 cmMynsturhæð: 57,6 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Karfa

0
image/svg+xml

Engar vörur eru í körfunni.

Continue Shopping