Yard – Omexco
13.532 kr. lengdarmetraverð
Hjarta hönnunarlínunnar Virginia´s Garden er sjálfur efniviðurinn, þ.e. náttúrulegur sísalvefur. Sísal býr til skynjunarsamspil lífrænnar áferðar og fágunar – einstaklega fallegt og hlýlegt. Prentuðu sísalveggfóðrin í línunni vekja upp hugrenningar um draumkennda garða með stílfærðum blómum og flæðandi laufþykkni en þriðji hluti línunnar er fíngerður sísalvefur sem er klipptur upp í lífræn form og síðan felldur saman í fögur mynstur.
Yard er fíngerður sísalvefur í mildum jarðtónum. Lífræn fegurð með náttúrulegum litabreytileika, oft tvítóna.
Veggfóður úr náttúrutrefjum er viðkvæmt í uppsetningu. Aldrei leyfa lími eða vatni að komast framan á veggfóðrið. Fyrir samfelldara útlit er mælt með að líma lengjurnar til skiptis upp og niður (önnur hver lengja er sett á hvolf miðað við lengjuna á undan). Athugið að límið er sett á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Munur getur verið á lit og útliti veggfóðurs úr náttúrutrefjum eftir lotum og lengjum. Ekki er hægt að tryggja fullkomna litasamsvörun milli sýnishorns í mynsturbók og keyptrar vöru. Það er hluti af fagurfræði náttúruefnanna – fegurðin liggur í ófullkomleikanum.
Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð í pöntun því veggir eru oft skakkir. Lágmarkspöntun er 3 m2.
Í boði sem biðpöntun




































