Cassetta Cinnamon - Arte
Cassetta Cinnamon – Arte
Skrautþiljur í öllum stærðum og gerðum hafa prýtt veggi og loft um aldir. Sem dæmi má nefna gólflista, loftalista, brjóstþil og veggþiljur í virðulegum stórhýsum, glæsihöllum og friðlýstum byggingum. Þessi form eru innblásturinn fyrir Objet veggfóðurslínuna hjá Arte. Cassetta veggfóðrið minnir einmitt á klassísk hólfaloft frá tímum Rómverja en sú hönnun var til þess hugsuð að létta strúktúrinn á hvelfingum og öðrum loftum. Glæsilegt veggfóðrið er bæði auðvelt í uppsetningu og hefur fallegan lit og áferð sem skapar ró í rýmin. Áferðin hefur yfirbragð rúskinns og skapar áþreifanlega mýkt. Þar sem veggfóðrið er í þrívídd hefur það einnig jákvæð áhrif á hljóðvist.
Cassetta veggefnið er mjúkur textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Cassetta hefur hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleika. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem mælt er eindregið með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið
38.146 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun











Granville Tangerine - Arte
Stagionato Foliage - Arte
Canvas Indigo - Boråstapeter
Petrouchka, Emerald - Cole & Son
Canvas Graphite - Boråstapeter
Lignes Pearl - Arte
Leipzig - Boråstapeter
Friedrich - Boråstapeter
Terrain Pastel - Rebel Walls
Terre de Lin Cabanon - Arte
Squirrel Mountain, Pink - Rebel Walls
Flamingos, Plaster Pink - Cole & Son
Canvas Straw - Arte
Giselle Mica, Plaster Pink - Cole & Son