Canvas Dew - Arte
Canvas Dew – Arte
Canvas er innblásið af áferð hörs á fallegan og tímalausan hátt. Ofið mynstrið og einstaklega mött áferðin sýnir greinilega einkennandi uppbyggingu ekta hörvefnaðar. Canvas kemur í 12 náttúrulitum. Þessi útgáfa er í dröppuðu.
Þetta veggfóður má hengja upp á tvo vegu: Annars vegar frjálst og hins vegar þannig að þræðirnir í mynstrinu passa saman þvert á veggfóðurslengjurnar á veggnum. Ef hið seinna er valið þá þarf að gera ráð fyrir því aukalega við pöntun en mynstur endurtekur sig á 90 cm fresti. Það verður því aðeins meiri afskurður með þeirri aðferð.
Canvas er vínilveggfóður á pappírsbaki. Veggfóðrið er mjög þvottþolið og auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
45.900 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Lin Dunes - Arte
Pensill - Purdy, Pro-Extra Monarch 38mm
Kingdom of the Willow - Boråstapeter
Stars, Metallic Gilver on Midnight - Cole & Son
Fairies - Boråstapeter
Caroline Indigo Blue - Sandberg
Terre de Lin Rotin - Arte
Bluebell, Sage, Mint & Lilac on Dark Viridian - Cole & Son
Edge Kapok - Arte
Senzo Spot, Soot & Snow - Cole & Son
Myrten - Boråstapeter
Sophia - Boråstapeter
Puro Mocha - Arte
Kítti - Akrýlkítti hvítt 310ml