
Brettaolía - Agndofa
Brettaolía – Agndofa
Brettaolía
Skurðbrettaolían frá Agndofa er 100% náttúruleg og matvælavæn. Hún er litar- og lyktarlaus með lífrænu bývaxi.
Brettaolían nærir og verndar viðar- og bambus skurðarbretti og aðrar viðarvörur. Með því að bera olíuna reglulega á viðinn eykst líftíminn og skurðarbrettið lítur út eins og nýtt ár eftir ár. Viðarolían verndar viðarfleti og kemur í veg fyrir að viðurinn þorni upp, springi og klofni. Íslensk framleiðsla
NOTKUN: Hreinsa skal viðinn með mildri sápu og volgu vatni. Látið viðinn þorna alveg. Berið eina umferð af olíunni á þurran viðinn með klút. Leyfið viðnum að draga í sig olíuna í nokkrar mínútur áður en umframolía er þurrkuð af. Gott er að leyfa viðnum að þorna í 12 til 24 klukkustundir fyrir notkun. Ef djúpir hnífsskurðir eru sýnilegir skal slípa það niður með sandpappír áður en viðurinn er þrifinn og olían borin á.
3.596 kr.
Tengdar vörur
Tengdar vörur
-
Tekkhreinsir
4.415 kr. Setja í körfu -
Tússtöfluveggfóður fyrir skjávarpa – Smarter Surfaces™
49.875 kr. – 81.690 kr. Veldu kosti