Bouquet Bister - Arte
Bouquet Bister – Arte
Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.
Þessi fallega veggklæðning, sem ber nafnið Bouquet (fr. blómvöndur) með rentu, er hönnuð eftir sögufrægu veggteppi í ríkislistasafninu Rijksmuseum í Amsterdam. Hönnunin lifnar við á áferðarríku textílefni, þar sem loftkenndur, opinn vefur gefur uppbyggingunni róandi og náttúrulegt yfirbragð.
Riverbank veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
25.213 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun


Pensill - Friess, 100mm
Pensill - Purdy, XL Elite Dale 50mm
Pensill - Purdy, XL Elite Monarch 25mm
Pulse of Passion Pink- Rebel Walls
Stig Lindberg Herbarium - Boråstapeter
Pensill - Anza, Super Soft Angle Cut 50mm