Récolte des Fleurs Morning Light - Arte

346.722 kr.

Récolte des Fleurs Morning Light – Arte

Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.

Heilmyndin Récolte des Fleurs, sem hönnuð er eftir fornu Beauvais veggteppi, lýsir líflegu og glaðværu sögusviði. Blómatínslufólk fagnar lífinu með smitandi orku sem hreinlega geislar út frá myndinni. Verkið, sem virðist unnið á bakgrunn úr skinni eða bókfelli, glóir eins og dýrmætur gripur sem hefur staðist tímans tönn með reisn. Récolte des Fleurs er heilmynd í stærðinni 400 cm x 300 cm, sem alls gera 12 m2. Hægt er að endurtaka mynstrið með því að leggja tvær eða fleiri heilmyndir hlið við hlið.

Récolte des Fleurs veggfóðrið er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið

346.722 kr.

Í boði sem biðpöntun

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Tengdar vörur

Karfa

5

Millisamtala: 19.790 kr.

Skoða körfuGreiðsluferli