Ramage Spicy Beige - Arte

48.644 kr. lengdarmetraverð

Ramage Spicy Beige – Arte

Frá 14. til 18. aldar voru kastalar og herragarðar skreyttir með stórkostlegum veggteppum. Þessi handofnu listaverk sýndu ekki aðeins goðsagnakennda atburði heldur einnig daglegt líf meðal yfirstéttarinnar. Þau færðu hlýju og liti í glæsilega salina og þjónuðu oft sem hrífandi umræðuefni fyrir gesti. Les Tapisseries er óður til þessara íburðarmiklu veggteppa. Sem framlenging af Décors & Panoramiques línunni frá Arte birtast hér tíu einstaklega vönduð veggfóður sem má ýmist kalla veggmyndir eða heilmyndir. Hver hönnun fyrir sig er innblásin af klassískum, aldagömlum veggteppum en hafa verið endurvakin og endurhugsuð með hliðsjón af sjónarmiðum samtímans.

Í textílheiminum lýsir orðið ramage trjágreinum og blómum – sem er viðeigandi heiti á þessari veggklæðningu í japönskum teiknistíl þar sem paradísarfuglar spóka sig í gróskumiklum laufgróðri. Hágæða íofna textílmyndin (fr. jacquard) gefur Ramage klassískan glæsileika sem endist yfir tíð og tíma.

Ramage veggfóðrið er textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið – sem eindregið er mælt með. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.

Leiðbeiningar fyrir veggfóður úr textíl á non-woven bakhlið

48.644 kr. lengdarmetraverð

Í boði sem biðpöntun

Rúllubreidd: 119 cmMynsturhæð: 90,5 cm
Áætla fjölda lengdarmetra
m
m
cm
cm
Niðurstöður

Endilega stimplið tölur í reiknivélina 2.1 sem verða 3 rúllur
Heildarverð:

SÉRPÖNTUN - EKKI SKILAVARA: Reiknivélin metur u.þ.b. það magn af veggfóðri sem þú þarfnast miðað við þínar mælingar. Sérefni taka ekki ábyrgð á ofáætlun eða skorti á veggfóðursmagni á grundvelli þessara útreikninga þar sem of margir þættir geta spilað inn í efnisþörf. Þar má nefna ónákvæmar mælingar, dyr, glugga, mynsturgerð, mistök í uppsetningu og fleira. Ef flókið er að finna út magn mælum við með að ráðfæra sig við fagmann áður en pantað er.

Tengdar vörur

Karfa

0
image/svg+xml

No products in the cart.

Halda áfram að versla