Bachelors Button, Silver - Morris & Co
Bachelors Button, Silver – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Dramatískt, eintóna mynstur með laufblöðum sem þyrlast um og sveigjast til og frá. Morris & Co vinnustofan stækkaði upp upprunalegu hönnunina frá 1892 og málaði í stíl við miðalda freskur. Útkoman er hrífandi.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
35.205 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































WX211 Flute veggþiljur
Fruit, Slate/Thyme - Morris & Co
Selma - Boråstapeter
Petite Fleur, Cerise & Eau de Nil - Cole & Son
Sabal Frost White - Arte
Sweet Pea, Yellow & Coral on Cream - Cole & Son
Temper Canary - Arte
Hicks' Hexagon - Cole & Son
Jasmine, Ecru/Woad - Morris & Co