Anicca Seal - Arte
Anicca Seal – Arte
Kanso veggfóðurslínan er innblásin af japönsku hugmyndafræðinni um naumhyggju og einfaldleika í innanhússhönnun. Línan felur sér kjarna hönnunar sem sameinar glæsileg og að því er virðist einföld geómetrísk mynstur. Bólstruð áferð bætir áþreifanlegri þrívídd í rýmið á meðan mjúk flauelsefnin gefa því hlýju og notalegt yfirbragð. Útkoman er hönnun sem geislar af lúxus, án óhófs, þar sem öll mynstur og litir eru vandlega hönnuð með því markmiði að bjóða upp á tímalausan glæsileika.
Japanska hugtakið Anicca merkir að eitthvað sé breytilegt í eðli sínu. Skálínurnar í þessari hönnun eru ójafnar og mismunandi þykkar þannig að aðlaðandi hreyfing myndast í því. Bólstruð útlitið skapar heillandi þrívíddaráhrif sem vekur líf í rýminu, á meðan mjúk og dáleiðandi flauelsáferðin er næstum ómótstæðilega áþreifanleg.
Anicca veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið
49.500 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Estelle, Light Green - Sandberg
Temper Mint - Arte
Motas Bone - Arte
Le Papier Tissé Chocolate - Arte
Tree of Life, Honey - Sandberg
Woods - Cole & Son
Bouclé Cloud - Arte
Cow Parsley, Ballet Slipper - Cole & Son
Chanderi Pebble - Arte
Emrik, Blue - Sandberg
Granville Chalk - Arte
Lilly, Light Blue - Sandberg
Temper Charcoal - Arte
Concrete Wall - Boråstapeter