Yugen Cinnamon - Arte
Yugen Cinnamon – Arte
Kanso veggfóðurslínan er innblásin af japönsku hugmyndafræðinni um naumhyggju og einfaldleika í innanhússhönnun. Línan felur sér kjarna hönnunar sem sameinar glæsileg og að því er virðist einföld geómetrísk mynstur. Bólstruð áferð bætir áþreifanlegri þrívídd í rýmið á meðan mjúk flauelsefnin gefa því hlýju og notalegt yfirbragð. Útkoman er hönnun sem geislar af lúxus, án óhófs, þar sem öll mynstur og litir eru vandlega hönnuð með því markmiði að bjóða upp á tímalausan glæsileika.
Þessi veggklæðning nær kjarna japanska hugtaksins Yugen, sem stendur fyrir fágun og dulúð. Aflangir, lóðréttir ferhyrningar af ójafnri þykkt skapa töfrandi þrívíddaráhrif og minna einna helst á litlu flísarnar í neðanjarðarlestakerfum stórborga. Veggfóðrið er ekki einungs sjónrænt aðlaðandi heldur áþreifanlega tælandi líka. Mjúkt rúskinnsyfirbragðið býr til tilfinningu fyrir lúxus og þægindum.
Yugen veggfóðrið er þykkur textíll með hljóðdempandi og blettafráhindrandi eiginleikum. Bakið úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná veggfóðrinu af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
Leiðbeiningar fyrir veggfóður með non-woven bakhlið
Myndband fyrir textílveggfóður í þrívídd á non-woven bakhlið
40.810 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun

Shades Phonolite - Boråstapeter
Tree of Life, Stone - Cole & Son
Biseau Bronze Black - Arte
Sky - Boråstapeter
Injisuthi, Stone & Sand - Cole & Son
My Feldt Violetta - Boråstapeter
Selma - Boråstapeter
Scrolling Tulip, Gold - Morris & Co
Blossom Mini - Boråstapeter
Skogsblomst - Boråstapeter
Hagtorn - Boråstapeter
Willowherb - Boråstapeter
Flamenco Fan - Cole & Son
Butterflies & Dragonflies, Alabaster & Metallic Gold on Eau Du Nil - Cole & Son