Wild Tulip & Vine, Rose/Linen - Morris & Co
Wild Tulip & Vine, Rose/Linen – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun fyrir almenning (fremur en aðalinn), með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau stílnum í byggingar-, nytja- og málaralist á 20. öld. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag, enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Morris & Co. X The Huntington – The Unfinished Works, er einstök hönnunarlína sem byggir á skissum William Morris og listræns stjórnanda hans, John Henry Dearle. Þessi mynstur hafa nú verið endurlífguð og fullgerð í samstarfi við Huntington Library, Art Museum og Botanical Gardens í Kaliforníu.
Túlípanar birtast iðulega í hönnun Morris & Co. Wild Tulip and Vine veggfóðrið sýnir einmitt túlípana með vínvið í bakgrunni. Lóðréttar skrautlínur fléttast saman við stílfærðar páskaliljur sem vinda sig um og leiða augað um mynstrið eftir mjúkri sveigðri braut.
Athugið að mælt er með að setja límið á bakhlið veggfóðurs, ekki beint á vegginn. Þrífið límbletti af með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
43.627 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Khulu Vases, Multi on Cream - Cole & Son
Shades Bronzite - Boråstapeter
Motas Turquoise - Arte
Canvas Forest - Boråstapeter
Lin Eclipse - Arte
Lignes Paille - Arte
Tulle Grey Blue - Arte
Lin Normandie Vintage - Arte
Franges Chestnut - Arte
Anna Misty Blue - Sandberg
Cow Parsley - Cole & Son
Lin Dauphin - Arte
Triana - Cole & Son
Canvas Shimmer - Boråstapeter
Tasar Deep Lagoon - Arte
Wild Jungle Mural - Boråstapeter
Lin Fantóme - Arte
Chanderi Urban - Arte
Morris Seaweed, Silver/Ecru - Morris & Co