Verdure Blue Mint - Arte
Verdure Blue Mint – Arte
Enginn veit nákvæmlega hvernær fyrstu veggteppin í Verdure stíl voru búin til, en á 16. öld voru þau komin um allt. Veggteppin voru hlaðin laufskrúði, sem oft var undirstrikað af meistaralegu samspili sólar og skugga. Handmálað og gróskumikið laufmynstur Verdure veggfóðursins frá Arte sækir innblástur í þessi hefðbundnu veggteppi. Samsetning ljóss og skugga er einmitt unnið af mikilli alúð til að skapa einstaka gróðurmynd með mikilli dýpt. Handmáluð hönnunin er síðan flutt yfir á vandaðan textíl, svokallaðan fil-à-fil, sem er franskt hugtak í textíliðnaðinum fyrir „þráður í þræði“ og vísar til tegundar efnis sem ofið er með tveimur mismunandi lituðum þráðum. Útkoman verður efni með fíngerðum en þó áberandi tvítóna áhrifum, sem er fullkomið val fyrir þetta vandaða veggfóður.
Verdure veggfóðrið er ofinn textíll með baki úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná því af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Blautt/rakt lím má strjúka létt af framhliðinni með svampi við upphengingu. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið. Einnig má benda á myndbönd á heimasíðunni.
24.164 kr. lengdarmetraverð
Í boði sem biðpöntun































Arrow Gravel - Arte
Adele, Yellow - Sandberg
Lin Vert de Gris - Arte
Tulle Cream - Arte
Edvin, Terracotta - Sandberg
Lin Bleu de Toi - Arte
Liljekonvalj Sage Green - Sandberg
Granville Bottle Green - Arte
Elliot, Sandstone - Sandberg
Lin Bain de Boue - Arte
Lin Flax - Arte
Blossom Mini - Boråstapeter
Hoopoe Leaves, Spring Green, Chartreuse & Coral on Forest - Cole & Son
Satara, Soot & Metallic Gold on Rouge - Cole & Son
Pimpernel, Bullrush/Russet - Morris & Co
Granville Granite - Arte
Terre de Lin Dulce - Arte