The Brook, Dark Blue – Morris & Co
43.836 kr. fermetraverð
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Í huga Morris voru veggteppi æðsta form skreytingarlistar. The Brook veggfóðrið fangar einmitt kunnuglega stemningu úr veggteppum miðalda, með dádýr á beit í skóginum. Þessi hönnun endurskapar skerpu og falleg smáatriði sem veggteppi miðalda eru svo þekkt fyrir.
The Brook er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
Lágmarkspöntun er 3m². Við mælum með að bæta um 5 cm við breidd og hæð því veggir eru oft skakkir.
Í boði sem biðpöntun



































































Lin Normandie Marais - Arte
Annabelle Terracotta - Sandberg
Lin Canvas - Arte
Hugo Oat - Sandberg
Lin Murano - Arte
Lin Normandie Moonlight - Arte
Lin Normandie Forest - Arte
Rose, Rose & Burnt Orange on Black - Cole & Son
Alexandra Sage Green - Sandberg
Lin Jute - Arte
The Brook, Dark Blue - Morris & Co
Lin Chérubin - Arte
Malachite Parchment & Soft Metallic Gold - Cole & Son
Lin Normandie Opaline - Arte
Mediterranea White & Black - Cole & Son
Asana, Sand - Rebel Walls