Snakeshead, Charcoal/Spice - Morris & Co
Snakeshead, Charcoal/Spice – Morris & Co
Enski fjöllistamaðurinn William Morris, sem var í fararbroddi í list- og handíðahreyfingunni (Arts and Crafts) á 19. öld, er sérstaklega þekktur fyrir veggfóðurshönnun sína. Áherslur hans voru á náttúruleg form og lífræna hönnun í daglegu lífi almennings, með stílfærðum blómum, plöntum, fuglum, ávöxtum og fleiri náttúrumótífum. Þessi mikli hugsjónamaður skildi eftir sig um 50 mynstur sem höfðu mikil áhrif á innanhússhönnun almennt, t.d. gætir áhrifa hans greinilega í Art Nouveau, sem er beinn forveri Art Deco stílsins. Fingraför Morris eru greinileg í mynsturgerð enn þann dag í dag enda hefur hann oft verið nefndur faðir veggfóðursins.
Sagt er að þetta veggfóður hafi verið í sérstöku uppáhaldi hjá Morris og var upphaflega framleitt árið 1876. Snakeshead sýnir klasa af keisaraliljum sem mynda einskonar skjaldarmerki.
Snakeshead er úr blöndu af pappír og gervitrefjum (non-woven) sem þenst ekki út í límingu og er auðvelt að ná af veggnum seinna meir. Athugið að mælt er með að setja límið á vegginn. Þrífið límbletti af framhlið með hreinu vatni og mjúkum svampi ÁÐUR en límið þornar. Lesið leiðbeiningar vel eða fáið fagmann í verkið.
39.877 kr. rúlluverð
Í boði sem biðpöntun































Lana Greige - Arte
Savanna Shell, Denim, Charcoal & Metallic Gold - Cole & Son
Carmen, Metallic Gilver - Cole & Son
Nelson Dandelion - Arte
Tela Forest Grey - Arte
Woods, Linen & Charcoal - Cole & Son
Strawberry Thief, Chocolate/Slate - Morris & Co
Temper Cabernet - Arte
Temper Navy Blue - Arte
Tela Alabaster - Arte
Woods - Cole & Son
Owl & Willow, Bayleaf/Orange - Morris & Co